Til foreldra
Samvinna við foreldra er mjög mikilvæg. Á haustin er haldinn foreldrafundur fyrir foreldra nýrra nemenda þar sem kennarar skólans kynna sér starfsemina. Á haust-, og vorönn er foreldravika þar sem foreldrum er boðið að fylgjast með kennslustund. Foreldrar eru hvattir til að hafa samband við kennara hvenær sem þurfa þykir. Nauðsynlegt er að foreldrar fylgist náið með hljóðfæranámi barna sinna, hvetji þau og fylgi eftir leiðbeiningum kennara um heimavinnu. Því fær hver nemandi stílabók í fyrsta hljóðfæratíma sínum þar sem kennarinn skrifar hvað nemandinn á að æfa fyrir næsta tíma. Þannig geta foreldrar fylgst með hvers ætlast er til af nemandanum hverju sinni og fylgt því eftir.
Skólareglur
- Nemendum ber að mæta stundvíslega í allar kennslustundir. Fjarvistir og ástæður fyrir þeim skulu tilkynntar til viðkomandi kennara eða í síma Tónlistarskólans (s: 565 2625) af foreldri/forráðamanni. Síendurteknar fjarvistir án leyfis geta varðað brottvikningu úr skólanum.
- Kennara er ekki skylt að bæta upp þær kennslustundir er kunna að falla niður vegna veikinda hans eða nemanda. Veikist kennari til langs tíma, reynir skólinn að útvega forfallakennara.
- Nemendur skulu ganga vel og snyrtilega um skólann og eigur hans, fara úr skóm í anddyri og hengja yfirhafnir á snaga.
- Nemendum sem taka á leigu hljóðfæri hjá skólanum ber að fara vel með þau. Nemendum er bannað að lána hljóðfærin. Viðhald hljóðfærisins á lánstímanum og skemmdir af völdum slæmrar meðferðar eru á kostnað nemanda.
- Nemendur sem spila á tónleikum eru skyldugir til að mæta á æfingar fyrir tónleikana.
- Nemendur mæti snyrtilega klæddir á tónleika.
- Nemendum er óheimilt að taka að sér opinberan flutning tónlistar utan skólastarfsins nema með samþykki kennara eða skólastjóra.
- Nemendum er skylt að taka þátt í tónleikum og annari starfsemi sem kennari ákveður.
- Nám í tónfræðagreinum er skylda allra hljóðfæra- og söngnemenda.
Fastir liðir í skólastarfinu
- Foreldrafundur fyrir foreldra nýrra nemenda.
- Tónleikar á degi tónlistarinnar í lok október.
- Foreldravika á haustönn.
- Tónfundir.
- Samspilsvika.
- Jólatónleikar í Bessastaðakirkju.
- Tónleikar á degi tónlistarskólanna í lok febrúar.
- Foreldravika á vorönn
- Tónsmíðahátíð.
- Vortónleikar.
- Þátttaka í messum og tónlistarflutningur fyrir félagasamtök.
- Tónleikaferðir á sjúkra- elli og hjúkrunarheimili.
- Árleg tónleikaröð þar sem listamenn koma og spila fyrir leikskóla og nemendur Álftanesskóla.
- Nemendur þreyta próf árlega. Ef ekki eru tekin áfanga- og stigspróf þá vorpróf.
- Tónleikar nema tónlistarkólans fyrir leikskóla og Álftanesskóla.