Námsgreinar

Forskóli/tónmennt

Í forskólanum er lögð áhersla á söng hreyfingu, hlustun og að spila á hljóðfæri. Nemendur læra margvísleg lög frá hinum ýmsum löndum, dansa og upplifa tónlist í gegnum hreyfingu. Hlusta á aðgengileg verk og gera ýmis verkefni í tengslum við þau. Nemendur fá tækifæri til að spila Orff hljóðfæri og einnig læra allir nemendur í 2. bekk á blokkflautu. Forskólinn veitir nemendunum þannig almenna undirstöðu fyrir frekara tónlistarnám ásamt því að glæða áhuga þeirra fyrir tónlist.

Gítar

Gítarnám getur hafist á aldrinum sex til sjö ára. Kennt er á klassískan gítar, rafgítar og bassa. Grunnur námsins er hinn klassíski gítar, sérstaklega með tilliti til tækni og nótnalesturs. Rytmisk tónlist getur verið hluti af náminu eftir að grunnfærni er náð á hljóðfærið.

Málmblástur

Hljóðfæri málmblástursdeildar eru trompet, horn, básúna og túba. Nemendur geta hafið nám átta til níu ára.

Píanó

Æskilegur byrjunaraldur í píanónámi er sjö til átta ár. Þó er hægt að byrja fyrr ef nemandinn hefur öðlast nægilegan þroska. Skilyrði fyrir píanónámi er að nemandinn hafi óhindraðan aðgang að píanói til æfinga.

Slagverkshljóðfæri

Slagverksnám skiptist í nám á sneriltrommur og trommusett annarsvegar og ásláttarhljómborð hinsvegar.

Skilyrt era ð nemendur læri á bæði hljóðfærin frá byrjun náms, en þó má í undantekningartilfellum leyfa nemendum á 1. ári að læra á annaðhvort hljóðfærið, í takmarkaðan tíma þó (1 önn), og er það leyfi háð mati og samþykki hljóðfærakennara nemandans. Uppsetning námsins er sú að nemendur taka bæði hljóðfærin fyrir á 1. ári. Á 2. ári mega nemendur taka fyrir annað hvort hljóðfærið í fullu námi í stað beggja hljóðfæra (2x30 mínútur). Á þriðja ári þurfa nemendur að taka aftur til við bæði hljóðfærin skv. Uppsetningu námsins. Þó má gera undantekningu frá þessari reglu sem er háð mati og samþykki hljóðfærakennara nemandans. Til grunnprófs (tekið í fyrsta lagi á 3. ári), þurfa nemendur þó að hafa hlotið fullnægjandi undirbúning á bæði hljóðfærin. Mikil árhersla er lögð á færni í nótnalestri ásamt þjálfun í að spila á hljóðfæri eftir eyra.

Strengjahljóðfæri

Hljóðfæri strengjadeildar eru fiðla, víóla, selló og kontrabassi. Nemendur geta hafið nám fimm til sex ára gamlir; þó er hægt að byrja fyrr ef þroski leyfir.

Söngur

Söngnám hefur nokkra sérstöðu miðað við hljóðfæranám. Hæfilegt þykir að hefja söngnám 17-18 ára en þó er það háð þroska einstaklingsins. Undirstöðuatriði söngnáms er raddabeiting og öndun auk réttar líkamsbeitingar. Túlkun texta, fallegur framburður og leikræn tjáning eru mikilvægir þættir í náminu. Í upphafi náms er meðleikur (pianó) eftir þörfum en mun meiri og reglulegri á efri stigum námsins. Í samsöngstímum fá nemendur tækifæri til að syngja í minni og stærri hópum auk þess að syngja fyrir aðra nemendur söngdeildar. Starfandi er unglingadeild fyrir 13-16 ára.

Tréblástur

Hljóðfæri tréblástursdeildar eru þverflauta, klarínett, óbó, fagott og saxófónn. Æskilegt er að þeir nemendur sem hefja nám á tréblásturshljóðfæri séu á aldrinum átta til níu ára, en það er nokkuð háð stærð nemanda og þroska.

Upptökutækni

Nám í hljóðveri/tölvutónlist getur hafist þegar nemendur hafa byrjað í 9.bekk. Markmið námsins er að nemendur læri helstu atriði hljóðvinnslu á tölvu. Námið skiptist í nokkra þætti: upptökur, hljóðvinnslu, hljóðhönnun, tónsköpun/tónsmíðar og nótnaritun og hljóðfræði. Kennt er í litlum hópum, 2-3 nemendur í senn. Gert er ráð fyrir að nemendur sæki tíma í tónfræðum eins og aðrir tónlistarnemendur.