Tónlistarskóli Álftaness
Álftanesskóla við Breiðumýri
Kt. 440169-6869
Sími: 565 2625
Skólastjóri: 565 3191





» 6.02.12

Dagur Tónlistarskólanna

Í tilefni að degi tónlistarskólanna verða hádegistónleikar þann 18. febrúar og verður á þeim tónleikum valið atriði sem keppir fyrir okkar hönd á “Nótunni” sem fer fram í mars. Kennarar skólans munu velja en tónleikagestir geta valið vinsælasta atriðið. Tónleikarnir hefjast kl. 11.00 og mun Foreldra- og velunnarafélag skólans standa fyrir kaffi- og djússölu eins og vanalega.

Alli velkomnir.

» 2.02.12

VETRARFRÍ

Vetrarfrí verður í tónlistarskólanum dagana 22. 23. og 24. febrúar.

» 2.02.12

HÁDEGISTÓNLEIKAR Á DEGI TÓNLISTARSKÓLANNA

Hádegistónleikar verða haldnir á Degi Tónlistarskólanna laugardaginn 18. febrúar í Hátíðarsalnum.
Upplýsingar um tónleikana og tímasetning kemur síðar.
ALLIR VELKOMNIR

» 12.01.12

TÓNSMÍÐAHÁTÍÐ

Miðvikudaginn 25. janúar verður tónsmíðahátíðin haldin í Hátíðarsal Íþróttamiðstöðvarinnar kl. 18.00.
Þar fá nemendur tækifæri til að flytja eigin tónsmíðar.
Þetta er mikið tilhlökkunarefni eins og alltaf :)
ALLIR VELKOMNIR

» 9.01.12

FORELDRAVIKA

Vikuna 23. – 27. janúar verður foreldravika í skólanum.
Þá er foreldrum/forráðamönnum boðið að mæta með börnum sínum
í hljóðfæratíma og fylgjast með framvindu námsins.
Kennarar og skólastjóri leggja mikla áherslu á að foreldrar nýti sér þetta tækifæri og fái þ.a.l. betri innsýn inn í námið, hitti kennarann
og fái upplýsingar um hvernig hægt er að aðstoða barnið við hljóðfæraæfingar heima við.
Hlökkum til að sjá alla “unga sem aldna” !

» 15.12.11

JÓLAKVEÐJA

Kennarar og skólastjóri Tónlistarskóla Álftaness óska öllum nemendum sínum og fjölskyldum þeirra og Álftnesingum öllum gleðilegra jólahátíðar og farsældar á nýju ári.
Þökkum fyrir allar ánægjulegar stundir á liðnu ári.

» 15.12.11

JÓLAFRÍ

Síðasti kennsludagur fyrir jól er föstudagurinn 16. desember.
Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 5. janúar 2012.

» 28.11.11

JÓLATÓNLEIKAR

Við minnum á jólatónleikana okkar þann 10. des.
Tónleikarnir verða haldnir í Bessastaðakirkju kl. 14. og 16.
Að venju verður fjölbreytt efnisskrá með einleiks- og samspilsatriðum.
Tónleikarnir hafa ætíð verið mjög vel sóttir og sett skemmtilegan
svip á aðventuna.

ALLIR VELKOMNIR

» 18.11.11

VETRARFRÍ

Við minnum á vetrarfríið á mánudaginn 21. nóvember.
Hafið það gott.

» 9.11.11

FRÉTTABRÉF

Nú hefur nýtt fréttabréf komið út í nóvember og verið sent á öll netföng nemenda og foreldra/forráðamanna.
Njótið vel

Older