Tónlistarskóli Álftaness
Álftanesskóla við Breiðumýri
Kt. 440169-6869
Sími: 565 2625
Skólastjóri: 565 3191





» 14.05.12

Vortónleikar í lok samspilsviku.

Samspiltónleikar verða haldnir n.k. laugardag þann. 19. maí, í Hátíðarsalnum kl. 11.00, 12.00 og 13.00.
Kaffi, djús og kleinur verða til sölu í umsjá Foreldra- og velunnarafélag tónlistarskólans.
ALLIR VELKOMNIR

» 14.05.12

Samspilsvika

Samspilsvika er haldin þessa viku, 14. – 18. maí.
Öll kennsla fer fram í samspilsformi og fellur því formleg einkakennsla niður þessa viku.
Vortónleikar verða haldnir í lok samspilsviku, þriðjudaginn 19. maí
í Hátíðarsalnum í formi kaffihúsatónleika, kl. 11.00, 12.00 og 13.00
Athugið að öll tónfræðikennsla fellur niður í samspilsviku.

» 17.04.12

TÓNLEIKAR ELDRI NEMENDA

Tónleikar eldri nemenda tónlistarskólans, verða haldnir í Hátíðarsal Íþróttamiðstöðvar Álftaness, fimmtudaginn 26. apríl kl. 18.00
ALLIR VELKOMNIR

» 29.03.12

GLEÐILEGA PÁSKA

Páskafrí hefst í tónlistarskólanum mánudaginn 2. apríl og kennsla hefst aftur þriðjudaginn 10. apríl.
HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST UM PÁSKANA

» 29.03.12

Umsóknir vegna tónlistarnáms 2012 - 2013

Við minnum á að umsóknum vegna náms í Tónlistarskólann þarf að skila í síðasta lagi 30. mars, fyrir n.k. vetur.
Farið er inn á vef Álftaness, alftanes.is smellt á eyðublöð efst í hægra horni, og smellt á umsókn um nám í tónlistarskólann, undir Skólar.

» 13.03.12

Á VERÐLAUNAPALLI

Tónlistarskóli Álftaness vann til verðlauna á “Nótunni” sunnudaginn 11. mars, í samkeppni tónlistarskóla frá Kraganum, Suðurlandi og Suðurnesjum sem fram fór í Salnum í Kópavogi.
Af 26 atriðum hlutu 9 verðlaun og þar á meðal var N´Aglasúpa (Öglubrugg) eftir einn nemanda okkar Öglu Bríet Einarsdóttur.
Lagið var flutt af 23 börnum úr skólanum undir stjórn Jakobs Hagedorn-Olsen sem einnig útsetti lagið fyrir hljóðfærahópinn.
Linda Margrét Sigfúsdóttir þverflautukennari aðstoðaði við undirbúning á atriðinu.
Við óskum þeim öllum hjartanlega til hamingju með glæsilegan árangur.

» 9.03.12

NÓTAN

Sameiginlegir tónleikar tónlistarskóla í Kraganum, Suðurlandi og Suðurnesjum fara fram sunndudaginn 11. mars í Salnum í Kópavogi.
Að þessu sinni á tónleikunum kl. 11.30 flytja nemendur okkar frumsamið lag N´Aglasúpu (Öglubrugg) eftir Öglu Bríet Einarsdóttur í útsetningu Jakobs Hagedorn-Olsen.
11.30 Tónleikar I
13.00 Tónleikar II
14.30 Tónleikar III
16.00 Lokaathöfn -afhending viðurkenningarskjala og verðlaunagripa
Allir velkomnir-aðgangur ókeypis

» 15.02.12

FRÉTTABRÉF

Nú hefur nýtt fréttabréf komið út í febrúar og verið sent á öll netföng nemenda og foreldra/forráðamanna.

» 6.02.12

Dagur Tónlistarskólanna

Í tilefni að degi tónlistarskólanna verða hádegistónleikar þann 18. febrúar. Á tónleikunum velja kennarar atriði sem tekur þátt fyrir okkar hönd á ,,Nótunni” sem fram fer í mars n.k. en tónleikagestum gefst tækifæri á að velja vinsælasta lagið. Foreldra- og velunnarafélag skólans standa fyrir kaffi- og djússölu eins og vanalega.

» 2.02.12

VETRARFRÍ

Vetrarfrí verður í tónlistarskólanum dagana 22. 23. og 24. febrúar.

Older